Exista keypti í dag 7.738.375 hluti í Kaupþing banka á genginu 798,6243 kr. á hlut (að meðaltali).

Exista hf. er félag fjárhagslega tengt Lýði Guðmundssyni, stjórnarmanni í Kaupþingi banka hf. en í tilkynningu frá bankanum kemur fram að Lýður eigi ekki sjálfur hluti í bankanum.

„Aðilar fjárhagslega tengdir Lýði Guðmundssyni eiga samtals 183.265.009 hluti í bankanum eftir viðskiptin,“ segir í tilkynningu frá Kaupþing.