Eins og áður hefur komið fram hefur Exista undanfarna mánuði leitað eftir samkomulagi við lánveitendur sína um endurskoðun lánasamninga og uppgjör gagnkvæmra krafna. Af þeim sökum er fjárhagsleg staða félagsins enn óljós.

Í tilkynningu frá Exista í dag kemur fram að félagið hefur ráðið til sín ráðgjafarfyrirtækið Talbot Hughes McKillop sem munu leiða vinnu við fjárhagslega endurskipulagningu Exista og samningaviðræður við bæði innlenda og erlenda lánveitendur félagsins.

„Samningaviðræðurnar geta leitt til þess að Exista óski eftir greiðslustöðvun og/eða formlegu nauðasamningaferli,“ segir í tilkynningunni.

„Náist hins vegar ekki samkomulag við lánveitendur félagsins getur það falið í sér að beðist verði gjaldþrotaskipta á félaginu.“