Exista hefur tapað 170 milljónum evra á fyrstu níu mánuðum ársins, samanborið við 869,5 milljóna evra hagnað á fyrstu níu mánuðum ársins 2007.

Tekjur félagsins á þeim tíma námu 157,3 milljónum evra samanborið við 1.105,3 milljónir evra á sama tímabili í fyrra. Tekjur þriðja ársfjórðungs námu 51,5 milljónum evra.

Heildareignir félagsins námu 6,3 milljörðum evra í lok september og eigið fé 2 milljörðum evra. Frá þeim tíma hefur þó orðið mikið áfall í rekstri félagsins, en það var stærsti hluthafi Kaupþings banka með tæplega 25% hlut.

Exista hefur brugðist við ytri áföllum með sölu eigna, meðal annars í Sampo, Storebrand og Bakkavör. Félagið verður einnig afskráð úr Kauphöllinni.

Í tilkynningu Existu er eftirfarandi haft eftir Lýði Guðmundssyni, forstjóra félagsins:

„Efnahagsreikningurinn í lok september sýnir styrk Exista fyrir hrun fjármálamarkaðarins. Bókfært eigið fé nam þá 2 milljörðum evra, eitt það mesta á meðal íslenskra fyrirtækja. Við þrot Kaupþings varð Exista, sem stærsti eigandi verðmætasta fyrirtækis landsins, fyrir þungu höggi. Þar eð eignarhluturinn í Kaupþingi var einungis að litlu leyti veðsettur heldur Exista velli.

Undanfarið ár höfum við lagt megináherslu á að verja undirstöður félagsins í fallandi fjármálamörkuðum. Efnhagsreikningur Exista hefur minnkað og skuldir greiddar niður. Lögð hefur verið áhersla á trausta lausafjárstöðu. Á þriðja ársfjórðungi greiddi Exista niður lán sín fyrir 300 milljónir evra. Þrátt fyrir markvissan undirbúning félagsins fyrir erfiða markaði varð hrun fjármálakerfisins í október miklu dýpra og víðtækara en unnt var að sjá fyrir. Staða Exista er óljós um þessar mundir. Við hrun íslensku bankanna átti félagið eignir umfram skuldir í bankakerfinu og er enn ekki ljóst hvort og þá hvenær skuldbindingum bankanna gagnvart Exista verður fullnægt. Þess vegna liggur eignastaða félagsins ekki fyrir. Þrátt fyrir óvissuna teljum við félagið hafa burði til þess að standa af sér áföllin. Innan Exista eru öflug íslensk fyrirtæki, svo sem VÍS, Lýsing og Síminn. Í lok október samþykktu hluthafar afskráningu félagsins úr Kauphöllinni og veittu víðtækar heimildir til aðgerða til þess að vinna að framtíðarlausnum fyrir félagið. Á þeim grundvelli er nú unnið að því að treysta framtíð Exista.“