Ríkisstjórnin hefur að tillögu samgönguráðherra ákveðið að falla frá hugmyndum um smíði Vestmannaeyjaferju í einkaframkvæmd. Í stað þess verði smíði ferju boðin út með hefðbundnum hætti og í framhaldi af því verði rekstur hennar boðinn út sérstaklega.

Talið er að smíði nýrrar ferju taki um tvö ár.

Samgönguráðherra fól Siglingastofnun Íslands í ágúst í fyrra að annast útboð í einkaframkvæmd á ferjusiglingum milli Vestmannaeyja og fyrirhugaðrar Landeyjahafnar í Rangárþingi eystra. Lög um höfnina voru samþykkt á Alþingi fyrir helgi. Gert var ráð fyrir að verktaki byggði ferjuna og ræki hana um fimmtán ára skeið.

Fjórum aðilum var gefinn kostur á að bjóða í verkið að undangengnu forvali. Tveir ákváðu að skila ekki tilboði en tilboð bárust frá Samskipum hf. annars vegar og hins vegar sameiginlega frá Vinnslustöðinni hf. og Vestmannaeyjabæ (V&V).

Tilboð Samskipa uppfyllti ekki lágmarkskröfur útboðsgagna og var dæmt ógilt. Tilboð V&V var talið gilt en auk aðaltilboðs bárust nokkur frávikstilboð.

Tilboðið 45% hærra en áætlun

Ekkert tilboðanna þótti viðunandi vegna kostnaðar og var þeim hafnað en ákveðið að fara í samningsviðræður við V&V. Niðurstaðan er sú að aðaltilboðið er 45% hærra en kostnaðaráætlun Siglingastofnunar og frávikstilboðið um 30% hærra. Almenn regla Siglingastofnunar er að taka ekki tilboðum sem eru 10% hærri en kostnaðaráætlun.

„Í ljósi þessa er talið rétt að leggja á hilluna allar hugmyndir um einkaframkvæmd á Vestmannaeyjaferju þar sem telja má aðstæður á lánamörkuðum þeirri aðferð mjög óhagstæðar um þessar mundir,” segir í tilkynningu á vef samgönguráðuneytisins.