Jeff Wieland
Jeff Wieland
Hin árlega Haustráðstefna Skýrr verður haldin í sautjánda skipti föstudaginn 9.september. "Þetta er stærsti viðburður vetrarins hér á landi í upplýsingatækni, enda um 60 fyrirlestrar í boði á 6 mismunandi fyrirlestralínum. Um þriðjungur fyrirlesara eru erlendir sérfræðingar. Að sögn aðstandenda er ráðstefnan skipulögð með það fyrir augum að þar geti allir fundið sér eitthvað við hæfi, hvort heldur stjórnendur, almennt starfsfólk... eða nördar," segir í fréttatilkynningu.

Lykilræðu á Haustráðstefnu Skýrr þetta árið flytur Jeff Wieland, stjórnandi hjá Facebook, en hann mun fjalla um þann starfsanda og vinnuferla, sem lagðir eru til grundvallar í menningu og uppbyggingu þessa samfélagsmiðlarisa. Wieland hefur starfað við samfélagsmiðlun hjá stórveldinu Facebook frá árinu 2006 og vinnur við hönnunarhlið verkefna þar.

Aðra lykilræðu flytur Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP, og ræðir þar einstakt samstarfsverkefni CCP og Sony þar sem EVE Online-veröld á PC-tölvum bráðnar saman við skotleikinn Dust 514 á PlayStation3. Athygli vekur að meðal annarra fyrirlesara er Stefán Eiríksson lögreglustjóri, sem hyggst fjalla um Facebook- og Twitter-væðingu embættisins.