Nýskráningum einkahlutafélaga síðustu tólf mánuði, frá júlí 2014 til júní 2015, hefur fjölgað um 11% samanborið við tólf mánuði þar á undan. Þá drógust gjaldþrot saman um 12% á sama tímabili. Þetta kemur fram í nýrri frétt Hagstofunnar .

Þar kemur fram að 2.173 ný félög hafi verið skráð á tímabilinu. Mest var fjölgun nýskráninga í flokknum „byggingastarfsemi og mannvirkjagerð,“ eða 48% á síðustu tólf mánuðum.

Alls voru 744 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu. Gjaldþrotum í flokknum „framleiðsla“ hefur fækkað mest, eða um 24% á síðustu tólf mánuðum.