Farþegum í áætlunarflugi Icelandair fjölgaði um 23,7% í júní. Þeir voru rúm 159 þúsund í júní í ár, en 128 þúsund í júní í fyrra. Frá áramótum eru farþegar Icelandair 19,4% fleiri en á fyrstu sex mánuðum síðasta árs.

Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að farþegum Flugfélags Íslands í innanlandsflugi fjölgaði um 13,5% í júní og hefur fjölgað um 15,6% á fyrstu sex mánuðum ársins ef miðað er við sama tímabil í fyrra.

Þá fluttu Flugleiðir-Frakt 43,1% fleiri tonn í júní en í júní 2003 og hafa flutt 30,2% fleiri tonn á fyrstu sex mánuðum ársins en á sama tíma í fyrra.

Í júní voru fartímar ("block-hours", þ.e. sá tími sem flugvél er í notkun, frá því hún fer frá brottfararhliði og þar til hún stöðvar aftur við brottfararhlið) hjá Loftleiðum-Icelandic 97,6% fleiri en í sama mánuði á síðasta ári. Á fyrstu sex mánuðum ársins eru fartímar hjá Loftleiðum-Icelandic rúmlega tvöfalt fleiri en í fyrra.