Farþegum í millilandaflugi Icelandair fjölgaði um 6,7% í febrúar í ár í samanburði við febrúar á síðasta ári. Þeir voru rúmlega 70 þúsund í ár en tæp 66 þúsund í fyrra. Sætanýting var einnig 2 prósentustigum betri, framboð var 5% meira, en sala 8,6% meiri.

Á fyrstu tveimur mánuðum ársins hefur farþegum Icelandair fjölgað um 9,2% milli ára, úr 131 þúsundi í fyrra í 143 þúsund í ár. Sætanýting hefur aukist um tæplega 1 prósentustig, en framboðið er 9,5% meira en á fyrstu tveimur mánuðunum 2004.

Flugfélag Íslands

Farþegar í innanlandsflugi Flugfélags Íslands voru nánast jafn margir og í febrúar á síðasta ári, eða tæp 24 þúsund. Á fyrstu tveimur mánuðum ársins eru þeir 4,5% fleiri en í fyrra.

Icelandair Cargo

Flutningar hjá Icelandair Cargo voru 2,3% meiri í febrúar í ár en í fyrra og hafa aukist um 5,3% á fyrstu tveimur mánuðum árins.

Loftleiðir-Icelandic

Fartímar (block-hours) hjá Loftleiðum-Icelandic voru 15,4% færri en á sama tíma í fyrra og á fyrstu tveimur mánuðum árins voru fartímarnir 9,6% færri en í fyrra.