Tæplega 115 þúsund farþegar fóru um Keflavíkurflugvöll í nýliðnum febrúarmánuði, samkvæmt tölum frá flugvellinum. Þetta er tæplega 12% fjölgun farþega á milli ára, það er miðað við febrúar í fyrra.

Frá áramótum hefur farþegum um Keflavíkurflugvöll fjölgað um 11,3% eða um 23.600 farþega.

Farþegar á leið frá landinu voru 52.900 í febrúar síðastliðnum, fjölgaði um 15% á milli ára. Nánast sami fjöldi var á leið til landsins og fjölgaði þeim um 13% miðað við febrúar í fyrra.