Icelandair flutti rúmlega 146 þúsund farþega í október sl., sem er 13% fjölgun á milli ára og hefur félagið aldrei áður flutt jafnmarga farþega í októbermánuði.

Heildarfjöldi farþega það sem af er ári nemur nú rúmlega 1,5 milljón sem er 19% aukning á milli ára. Rétt er að geta þess að í júlí sl. sló Icelandair farþegamet þegar félagið flutti rúmlega 254 þúsund farþega. Þá hefur félagið slegið eigið farþegamet í hverjum mánuði sl. fjóra mánuði.

Þetta kemur fram í mánaðarlegum flutningstölum frá Icelandair Group en heildarfjöldi farþega hjá Icelandair á síðasta ári nam tæplega 1,5 milljón, samanborið við tæplega 1,3 milljón farþega árið 2009. Fjöldi farþega það sem af er þessu ári er þannig kominn yfir það sem hann var í fyrra.

Sætanýting Icelandair í október var 81,5% sem er 1% minna en á sama tíma í fyrra. Sætanýtingin það sem af er ári er nú tæp 80% og hefur aukist um 1% á milli ára.

Farþegum Flugfélags Íslands fjölgar lítillega

Farþegum Flugfélags Íslands, sem jafnframt er í eigu Icelandair Group, fækkaði um 4% á milli ára í október þegar félagið flutti um 29.400 farþega. Farþegafjöldi félagsins jókst lítillega á milli ára í vor en á sama tíma í fyrra var lítið flogið innanlands vegna eldgossins í Eyjafjallajökli. Farþegum Flugfélags Íslands hefur fjölgað um 3% á milli ára það sem af er þessu ári og sætanýtingin um 1,1%.

Nýting flugflota í eigu Icelandair Group jókst á milli ára í október eða um rúm 4%. Hér er átt við vélar í eigu samstæðunnar, meðal annars vélar sem leigðar eru út á vegum Lofteidir Icelandic, sem nýttar eru til leiguverkefna á vegum samstæðunnar. Nýting flugflotans jókst um 1% á milli ára á síðasta ári en hefur dregist saman um 0,4% það sem af er ári.

Fraktflug á vegum Icelandair Cargo jókst um 12% á milli ára í október. Samdrátturinn í fraktflugi á síðasta ári nam um 4% en aukningin það sem af er þessu ári nemur 11% á milli ára.

Þá jókst nýting hótelherbergja í eigu samstæðunnar um 4% á milli ára í október og hefur þannig aukist um 1,8% það sem af er ári.