Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu hélt áfram að dragast saman í vikunni, fimmtu vikuna í röð, en veltan þar á undan var nokkuð yfir meðallagi.

Þannig nam veltan nú í vikunni 1.392 milljónum króna samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands, samanborið við 1.721 milljónir króna veltu í síðustu viku og dróst því saman um 19% á milli vikna.

Fjögurra vikna meðalvelta heldur líka áfram að dragast saman og fer í fyrsta sinn í fimm vikur undir tvo milljarða króna. Þannig nemur fjögurra vikna meðalvelta nú 1.862 milljónum króna, samanborið við 2.104 milljónir í vikunni á undan.

Fjögurra vikna meðalvelta  hefur nú lækkað um 405 milljónir króna á fjórum vikum.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur hækkað um 21% á milli ára, en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta dregist saman um 29% milli ára.

Tólf vikna meðalvelta jókst lítillega á milli vikna í vikunni eða um 10 milljónir króna, og nemur nú 1.915 milljónum króna. Þá hefur 12 vikna meðalvelta ekki verið hærri frá því í byrjun febrúar sl.

Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði en hún er nú 1.634 milljónir króna á viku og hefur aukist um 42% á milli ára.

Í þessari viku:

Alls var 55 kaupsamningum þinglýst í vikunni, samanborið við 65 samninga í vikunni á undan. Alls var 39 samningum þinglýst að meðaltali á síðasta ári en 54 samningum að meðaltali á viku það sem af er þessu ári þannig að fjöldi samninga síðustu mánuði er töluvert yfir meðaltali.

Meðalupphæð á hvern samning lækkaði á milli vikna í þessari viku og nam 25,3 milljónum króna, samanborið við 26,5 milljónir króna í síðustu viku. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 34,6 milljónir króna en það sem af nemur þessu ári nemur meðalupphæðin 28,6 milljónum króna og hefur því lækkað nokkuð.

Meðaltal síðustu 12 vikna er þó 28,9 milljónir króna.