Velta á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu jókst lítillega á milli vikna í liðinni viku. Þannig nam velta í vikunni 1.565 milljónum króna samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands, samanborið við 1.353 milljóna króna veltu í vikunni á undan og jókst því um 16% á milli vikna.

Fjögurra vikna meðalvelta hækkar á milli vikna, eftir að hafa lækkað tvær vikur í röð þar á undan, og nemur nú 1.518 milljónum króna, samanborið við 1.1406 milljónir í vikunni á undan. Fjögurra vikna meðalvelta hefur þó lækkað um 17 milljónir króna á fjórum vikum.

Til að sjá betur heildarmyndina af fasteignamarkaðir má sjá þróun fjögurra vikna meðalveltu á milli ára á myndinni hér að ofan. Þar sést að fjögurra vikna meðalvelta hefur nú hækkað um 28% milli ára en á sama tíma í fyrra hafði fjögurra vikna meðalvelta lækkað um 55% milli ára.

Tólf vikna meðalvelta hækkar einnig á milli vikna, eða um 67 milljónir króna, og nemur 1.326 milljónum króna.

Þá má skoða meðalveltu á viku síðustu 12 mánuði. Hún er nú 1.429 milljónir króna á viku. Fyrir ári síðan nam 12 mánaða meðalveltan 1.682 milljónum króna og hefur því dregist saman um 15% á milli ára. Þá má geta þess að um miðjan janúar í fyrra fór 12 mánaða meðalvelta í fyrsta skipti undir 2 milljarða frá því febrúar 2003.

Í síðustu viku:

Alls var 57 kaupsamningum þinglýst í vikunni, samanborið við 51 samning í vikunni þar á undan. Alls var 39 samningum þinglýst að meðaltali á síðasta ári en 45 samningum að meðaltali á viku það sem af er þessu ári.

Meðalupphæð á hvern samning hækkar lítillega á milli vikna og nam í vikunni 27,5 milljónum króna, samanborið við 26,5 milljónir króna í vikunni á undan. Meðalupphæð á hvern samning á síðasta ári var 34,6 milljónir króna en það sem af nemur þessu ári nemur meðalupphæðin 30,5  milljónum króna.