Sáralítil velta var á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu í vikunni eða aðeins 530 milljónir króna. Veltan dregst því saman um 44% milli vikna samkvæmt upplýsingum frá Fasteignaskrá ríkisins (áður Fasteignamat ríkisins).

Rétt er að hafa í huga að meðalvelta á viku á síðasta ári var rúmir 2,1 milljarðar. Þó er meðalvelta síðustu þrjár vikur aðeins um 590 milljónir en lítil hreyfing hefur verið á fasteignamarkaði í desember og fyrstu vikur þessa árs.

Á myndinni hér til hliðar má sjá breytingu á fjögurra vikna meðalveltu á milli ára sem hefur minnkað um 75% milli ára. Fasteignasala sveiflast gjarnan mikið á milli vikna og þess vegna er horft til meðalveltu fjögurra vikna og breytinga á henni milli ára.

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga var 21 í vikunni sem leið en 35 samningum var þinglýst í vikunni þar áður. Að meðaltali var 66 samningum þinglýst á viku á síðasta ári en síðustu þrjár vikur hefur 23 samningum verið þinglýst að meðaltali á viku.

Meðalupphæð á hvern samning var í vikunni 25,4 milljónir króna og lækkar um tæpar tvær milljónir milli vikna. Þetta er þó enn undir meðaltali en meðalupphæð á hvern samning frá síðustu áramótum eru tæpar 32 milljón krónur en hefur verið um 24,5 milljónir síðustu þrjár vikur.

Á ársgrundvelli hefur velta á fasteignamarkaði dregist saman um 77% og gefur það heildstæðari mynd af fasteignamarkaði. Kaupsamningum hefur fækkað milli ára og er vægi hvers kaupsamnings meira fyrir vikið. Auk þess getur hver samningur falið í sér fleiri en eina eign auk þess sem eignir eru mismunandi.