Veitingamenn í miðborg Reykjavíkur hafa stofnað með sér samtök undir nafninu Félag kráareigenda. Markmið félagsins er að gera miðborgina skemmtilegri og öruggari. Kráareigendur telja að stofnun félagsins geti auðveldað allt samstarf við aðra hagsmunaðila á svæðinu, borgaryfirvöld, íbúa, fyrirtæki og lögreglu og gert það markvissara og skipulegra en nú er.

?Kráareigendur hafa alveg sömu hagsmuni aðrir í miðborginni. Við viljum að gestir okkar geti notið lífsins áhyggjulaust í snyrtilegu umhverfi án þess að hafa áhyggjur af ofbeldi?, segir Baldvin Samúelsson, talsmaður félagsins. ?Við fögnum þvi að löggæslan sé orðin sýnilegri og við sjáum mikinn mun á því hvernig umgengni hefur batnað og skrílslæti minnkað. Okkur finnst umræðan að undanförnu hafa verið dálítið ósanngjörn í okkar garð, því öll alvarlegu vandamál miðborgarinnar eru úti á götunum en ekki inni á stöðunum okkar.?

Félagið hvetur til faglegrar umræðu um málefni miðborgarinnar og telur hægt að ná mjúkri lendingu í málefnum hennar þannig að allir geti unað glaðir við sitt.