Ferðakostnaður ríkisins lækkaði um 1,1 milljarða króna á fyrstu sex mánuðum ársins, samanborið við sama tíma í fyrra og fór úr tveimur milljörðum í 0,9 milljarða. Lækkunin nemur alls 55% en hún er rakin til heimsfaraldursins í tilkynningu fjármála- og efnahagsráðuneytisins.

Í Stjórnarráðinu lækkaði ferðakostnaður um 64% á tímabilinu. Ferðakostnaður ráðuneyta nam 60 milljónum á fyrstu sex mánuðum ársins en á sama tíma í fyrra nam hann 160 milljónum. Mesta hlutfallslækkun ferðakostnaðar er í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu, þar sem hann lækkaði um 81%, en minnsta lækkun kostnaðarins var í mennta- og menningarmálaráðuneytinu þar sem ferðakostnaður lækkaði um 54% á milli ára.

Með ferðakostnaði er átt við ferðalög og uppihald á ferðalögum á Íslandi og erlendis. Tölurnar ná til A-hluta stofnana ríkisins sem eru um 160 talsins. Þar undir eru ráðuneytin og undirstofnanir þeirra, svo sem framhaldsskólar, háskólar, sjúkrahús, heilbrigðisstofnanir, sýslumanns- og lögreglustjóraembætti.

Þegar skoðaður er ferðakostnaður einstakra stofnana sést að mest lækkun milli áranna 2019 og 2020 er hjá Háskóla Íslands, Landspítala og Landhelgisgæslu Íslands.

Frétt uppfærð kl. 13:17 – Fréttatilkynning fjármála- og efnahagsráðuneytisins var uppfærð eftir birtingu „vegna mistaka sem urðu við vinnslu gagna í fyrri útgáfu“. Í upphaflegu útgáfunni stóð að ferðakostnaðurinn hafi lækkað um 2,7 milljarða á fyrri helmingi ársins, samanborið við sama tíma í fyrra, eða um 41%.