FÍB hefur nú brugðist við svari FME , en svar FME kom til vegna áskorunar sem FÍB gaf frá sér um helgina.

FÍB segir í nýrri athugasemd við svarinu að það sé ljóst að FME skilji ekki í hverju gagnrýnin felist.

„FME telur að tryggingafélögin hafi ekki staðið sig sem skyldi við að réttlæta óeðlilegar arðgreiðslur. FME skilur ekki að það er ekkert að réttlæta.

FME skilur ekki að gagnrýnin snýst um andvaraleysi stofnunarinnar þegar kemur að hagsmunum almennings. FME vanrækir þetta hlutverk sitt.

FME ráðleggur tryggingatökum að skipta bara um tryggingafélag ef þeir eru ósáttir við óeðlilegar arðgreiðslur. Þrjú stærstu tryggingafélögin með 90% markaðarins sæta öll gagnrýni fyrir áform um óhóflegar arðgreiðslur. Hverju breytir fyrir viðskiptavin að fara frá einu slíku yfir í það næsta? Ljóst er að FME er ekki í tengslum við raunveruleikann.“

FÍB segir að skilningsleysi FME komi skýrt fram í hvatningu eftirlitsins til tryggignafélaga um að hækka iðgjöld á sama tíma og þau dæla milljörðum út í arðgreiðslur.

„FME lætur eins og iðgjaldatekjur og fjárfestingatekjur tryggingafélaganna séu óskyldir hlutir. Þetta er rangt. Tryggingafélögin ávaxta fyrirframgreiddu iðgjöldin og þannig verða fjárfestingatekjurnar til. Sú ávöxtun á að vera í þágu viðskiptavina, en ekki bara eigenda félaganna.  Samt telur FME þörf á iðgjaldahækkun af því að „tryggingahlutinn“ sé rekinn með tapi þó fjármálahlutinn skili hagnaði, rétt eins og hann sé óskyldur tryggingum. En að sjálfsögðu er heildarafkoman það sem skiptir máli þegar þörfin fyrir hækkun er metin. FME stendur með fyrirtækjunum gegn hagsmunum neytenda þegar það leggur blessun sína yfir iðgjaldahækkun hjá tryggingafélögunum sem taka á sama tíma milljarða króna í arð.“

FME sagði í yfirlýsingu sinni að eftirlitið hefði ekki lagaheimild til að gefa tryggingarfélögunum fyrirmæli um ráðstöfun arðs til tryggingartakanna sem byggðu upp bótasjóðina.

„Hér undirstrikar FME sofandahátt síðustu 6-7 ára, meðan innleiðing nýrra reikningsskila hefur verið í undirbúningi. Fyrir löngu var FME ljóst að tryggingafélögin þyrftu ekki á bótasjóðunum að halda þegar nýju reglurnar, sem kallast Solvency 2, yrðu innleiddar. Þegar árið 2011 uppfylltu öll tryggingafélögin nýju kröfurnar. Þá þegar gat FME farið að vinna með tryggingafélögunum að því að láta þau skila bótasjóðunum til viðskiptavina með því einfaldlega að nýta þá til að greiða tjón. Á móti hefði verið hægt að lækka iðgjöld og þannig hefðu viðskiptavinir tryggingafélaganna fengið sjóðina endurgreidda.„