Stjórn Advania var endurkjörin á aðalfundi fyrirtækisins 27. mars síðastliðinn. Formaður stjórnarinnar er eins og áður Finnbogi Jónsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Framtakssjóðsins. Aðrir í stjórn eru þau Anna Rún Ingvarsdóttir, Katarina Burton, Kristinn Pálmason og Þór Hauksson. Varastjórn skipa Erna Eiríksdóttir og Kristján Ágústsson, sem kom nýr inn.

Í tilkynningu frá Advania kemur fram að fyrirtækið uppfylli ákvæði laga um kynjahlutföll í stjórnum hlutafélaga. Konur eru 40% stjórnarmanna í aðalstjórn og 50% í varastjórn. Konur eru í dag tæplega þriðjungur starfsfólks og stjórnenda hjá Advania. Það er nokkuð hátt hlutfall, en hefðbundið hlutfall kvenna í upplýsinga-tæknifyrirtækjum er 10-15% samkvæmt upplýsingum frá Félagi kvenna í upplýsingatækni.