Félag íslenskra stórkaupmanna (FÍS) hefur viðurkennt að innan félagsins hafi átt sér stað umræður um verðlagsmálefni aðildarfyrirtækja félagsins sem starfa á sviði matvöru.

Umræðurnar voru bæði á vettvangi stjórnar félagsins og innan matvöruhóps FÍS og hafi þær gengið lengra en samkeppnislög heimila.

Þetta kemur fram á vef Samkeppniseftirlitsins.

Þá kemur fram að fyrrverandi framkvæmdastjóri félagsins hafi að sama skapi rætt um hækkunarþörf félagsmanna á opinberum vettvangi sem hafi verið til þess fallið að raska samkeppni. Jafnframt hafi átt sér stað samskipti við Samtök verslunar og þjónustu um að félögin myndu tala einni röddu um ástæður umræddra verðhækkana.

Á vef Samkeppniseftirlitsins kemur fram sem fyrr segir að FÍS hafi viðurkennt að hafa farið gegn samkeppnislögum að þessu leyti. Þó kemur fram að af hálfu FÍS sé þó tekið fram að ásetningur hafi ekki staðið til þess að hindra samkeppni.

Athugunin hófst í framhaldi af frétt í Ríkisútvarpinu þann 29. mars 2008, undir fyrirsögninni „Matarverð að hækka um 30%“.

Í fréttinni var m.a. haft eftir þáverandi framkvæmdastjóra FÍS að það væri ljóst að komin væri ákveðin hækkunarþörf og að það kæmi honum ekki á óvart ef matarverð myndi hækka um 20-30% á allra næstu vikum og mánuðum.

Fram kemur að með hliðsjón af því sem fram kom í fréttinni ákvað Samkeppniseftirlitið að hefja athugun á umfjöllun innan FÍS um matarverðshækkanir.

Í ágúst 2008 sendi Samkeppniseftirlitið FÍS andmælaskjal, þar sem greint var frá frumniðurstöðum athugunarinnar og félaginu gefið færi á að tjá sig um þær.  FÍS skilaði sjónarmiðum sínum og óskaði í framhaldinu eftir því að sátt yrði gerð í málinu.  Sátt náðist um niðurstöðu málsins og byggir ákvörðun Samkeppniseftirlitsins á henni. Í sáttinni felst að FÍS fellst á að hafa brotið gegn ákvæði samkeppnislaga og fellst á að greiða eina milljón króna í stjórnvaldssekt.

Þá kemur fram að við mat á fjárhæð sekta sé m.a. litið til þess að FÍS óskaði að eigin frumkvæði eftir sáttarviðræðum og hefur játað brot á samkeppnislögum.

„Með þessum aðgerðum sínum hefur FÍS auðveldað og stytt rannsókn og málsmeðferð samkeppnisyfirvalda sem hefur jákvæð samkeppnisleg áhrif,“ segir á vef Samkeppniseftirlitsins.

Þá sé einnig til þess litið að FÍS hafi í máli þessu upplýst að félagið hafi sett sér almennar starfsreglur sem eftirleiðis muni gilda um alla starfsemi félagsins og öll samskipti þess við félagsmenn, sem og öll samskipti félagsmanna sín á milli á vettvangi félagsins

Sjá nánar vef Samkeppniseftirlitsins.