Heildarafli íslenskra skipa í nóvember, metinn á föstu verði, var 4,1% meiri en í nóvember 2007.

Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 3,5% miðað við sama tímabil 2007, sé hann metinn á föstu verði, að því er fram kemur á vef Fiskistofu.

Afli á föstu verði er reiknaður út til þess að finna breytingu á verðmæti heildaraflans að gefinni þeirri forsendu að verðhlutföll milli einstakra fisktegunda séu þau sömu og á ákveðnu viðmiðunarári sem hér er árið 2004.

Hér er því um að ræða hliðstæðu við umreikning á afla yfir í þorskígildi. Aflinn í tonnum sýnir hins vegar magn aflans án tillits til þess að fisktegundir eru misjafnlega verðmætar.

Afli í tonnum

Aflinn nam alls um 118 þús. tonnum í nóvember 2008 samanborið við 106 þús. tonn í nóvember 2007. Afli þorsks, karfa og ufsa jókst en ýsuafli dróst saman.

Afli uppsjávartegunda nam tæpum 74.500 tonnum og var nær eingöngu síld. Uppsjávarafli jókst um tæp 5.600 tonn frá nóvember 2007.

Sjá nánar HÉR .