Matsfyrirtækið Fitch hefur staðfest lánhæfisseinkunnir ríkissjóðs fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri mynt sem BBB og BBB+ í innlendri mynt. Einkunnir fyrir skuldabréf (e. senior unsecured bonds) í erlendri og innlendri mynt eru staðfestar sem BBB og BBB+.

Lánshorfurnar á langtímaskuldbindingum ríkissjóðs eru stöðugar, að mati Fitch. Landseinkunnin (e. Country Ceiling) er staðfest sem BBB og jafnframt er staðfest lánshæfisþakið F3 fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt.