Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur staðfest lánhæfisseinkunnir Ríkissjóðs Íslands fyrir langtímaskuldbindingar í erlendri mynt sem BBB og BBB+ í innlendri mynt. Einkunnir fyrir skuldabréf í erlendri og innlendri mynt eru staðfestar sem BBB og BBB+. Kemur þetta fram í tilkynninu til Kauphallarinnar.

Horfur fyrir lánshæfismat á langtímaskuldbindingum eru stöðugar. Landseinkunnin er staðfest sem BBB og jafnframt er staðfest lánshæfismatið F3 fyrir skammtímaskuldbindingar í erlendri mynt.