Dótturfélag í 100% eigu Fjárgæslunnar ehf, Merking ehf., hefur tekið við öllum rekstri Merkingar skiltagerðar ehf., segir í fréttatilkynningu.

Fjárgæslan hefur um árabil átt fasteignir og hluta vélbúnaðar Merkingar skiltagerðar ehf, en hefur nú keypt annan rekstur félagsins og tekið yfir ráðningarsamninga við starfsmenn, segir í tilkynningunni.

Merking mun því bjóða upp á sambærilega þjónustu og Merking skiltagerð hefur boðið landsmönnum uppá síðustu árin.

Félagið er mjög vel tækjum búið og verður ein af stærstu merkinga- og auglýsingaprentstofum landsins.

Hluthafar Fjárgæslunnar eru Pétur Björnsson, Ólafur Steinarsson og Jóhannes Frank Jóhannesson