Fjármálaeftirlitið birtir reglulega á vef sínum aðvaranir erlendra fjármálaeftirlita  þar sem varað er við starfsemi fyrirtækja sem ekki hafa starfsleyfi eða leyfi til að veita þjónustu fjármálafyritækja. Í febrúarmánuði síðastliðnum voru þessar aðvaranir 54, að því er kemur fram á vef FME.

Lista yfir slík fyrirtæki má sjá hér .

„Fjármálaeftirlitið minnir á að kynning eða sala á fjárfestingarkostum til almennings á Íslandi er starfsleyfisskyld. Mikilvægt er að fjárfestar gangi úr skugga um að fyrirtæki hafi slíkt leyfi með því að hafa samband við Fjármálaeftirlitið eða fara á heimasíðu þess. Þá skiptir jafnan miklu að vera tortryggin gagnvart óumbeðnum tilboðum eða fjárfestingarmöguleikum sem virðast of góðir til að vera sannir, óháð því með hvaða sniði þeir kunna að vera eða hvaðan þeir eiga uppruna sinn að rekja,“ segir á vef FME.