Eva Sóley Guðbjörnsdóttir, sem gegnt hefur stöðu framkvæmdastjóra fjármála Icelandair Group, hefur óskað eftir að láta af störfum hjá félaginu. Ívar Sigurður Kristinsson tekur tímabundið við stöðunni en Eva Sóley mun starfa áfram hjá félaginu næstu vikur meðan á yfirfærslunni stendur.

„Eva Sóley hóf störf hjá Icelandair Group í byrjun árs 2019 og hefur verið í lykilhlutverki að koma félaginu í gegnum fordæmalausar rekstraraðstæður. Þar má nefna yfirgripsmikla fjárhagslega endurskipulagningu félagsins á síðasta ári sem lauk með mjög vel heppnuðu hlutafjárútboði. Þar að auki hefur hún leitt fjármálasvið félagsins í gegnum mikið umbreytingarferli,“ segir í fréttatilkynningu

„Ég er ákaflega stolt af því að hafa fengið tækifæri til að vinna fyrir þetta einstaka félag með framúrskarandi stjórnendateymi og starfsfólki á þessum fordæmalausum tímum sem félagið hefur gengið í gegnum á meðan ég hef gegnt hlutverki framkvæmdastjóra fjármálasviðs. Ég hef ákveðið að skipta um takt á þessum tímapunkti og hef því tekið þá erfiðu ákvörðun að segja skilið við félagið. Ég óska samstarfsfólki mínu og félaginu alls hins besta og hlakka til að fylgjast með félaginu áfram sem stoltur hluthafi,“ segir Eva Sóley í tilkynningu.

Ívar Sigurður Kristinsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármála Icelandair Group tímabundið og tekur nú þegar sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Ívar hefur á undanförnum árum starfað hjá Icelandair, m.a. sem framkvæmdastjóri flotamála og leiðakerfis félagsins og þar áður sem stjórnandi á fjármálasviði. Hann var forstöðumaður hjá Promens á árunum 2006-2008 eftir að hafa starfað sem verkefnastjóri í upplýsingatækni og rekstrarstýringu hjá Icelandair frá árinu 2000. Ívar er með M.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands og MBAgráðu með áherslu á fjármál frá University of North Carolina, Chapel Hill.

„Ég þakka Evu Sóleyju fyrir frábær störf í þágu félagsins og óska henni velfarnaðar í framtíðinni. Framlag hennar hefur verið ómetanlegt í þeirri vegferð að koma Icelandair Group í gegnum gríðarlega erfiðar aðstæður á undanförnum misserum. Um leið og við kveðjum Evu Sóleyju með söknuði, þá skiljum við þessa persónulegu ákvörðun hennar. Þá býð ég Ívar velkominn í nýtt hlutverk. Hann þekkir félagið mjög vel og hefur yfirgripsmikla reynslu og þekkingu á flugrekstri en hann hefur meðal annars verið í lykilhlutverki í fjármögnun og mótun flotastefnu félagsins á undanförnum árum,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group.

Eva Sóley er annar stjórnandinn sem hættir hjá Icelandair í vikunni. Á mánudaginn var tilkynnt um um að Þóra Eggertsdóttir hafi tekið við sem fjármálastjóri Play en hún hefur undanfarið ár starfað sem forstöðumaður innanlandsflugs hjá Icelandair. Þar áður var hún fjármálastjóri Air Iceland Connect.