Árný Hlín Hilmarsdóttir
Árný Hlín Hilmarsdóttir
© Aðsend mynd (AÐSEND)

Árný Hlín Hilmarsdóttir hefur verið ráðin fjármálastjóri Reykjavík Hilton Nordica. Hún starfaði áður sem framkvæmdastjóri Félags viðskipta- og hagfræðinga.

Árný er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og með MBA frá háskóla í Malasíu. Árný starfaði áður sem fjárreiðustjóri hjá Flugfélaginu Atlanta.

Sigurlaug R. Sævarsdóttir, sem verið hefur framkvæmdastjóri félagsins síðastliðin þrjú ár, hverfur nú til annarra starfa.