Fjögur skemmtiferðaskip með á fjórða þúsund farþega munu koma til Íslands sérstaklega vegna sólmyrkvans 20. mars og norðurljósanna.

„Þetta er skemmtileg nýbreytni varðandi skemmtiferðasiglingar til Íslands. Það hefur ekki gerst áður að skemmtiferðaskip komi hingað um vetur. Um er að ræða ellefu daga siglingu skipinna á norðurslóðir til að sjá sólmyrkvann og norðurljósin. Öll skipin munu koma til hafnar í Reykjavík. Ef þetta gengur vel gæti þetta orðið upphafið af vetrarsiglingum skemmtiferðaskipa til Íslands,” segir Jóhann Bogason, verkefnisstjóri hjá TVG-Zimsen, en fyrirtækið þjónustar flest skemmtiferðaskip sem hingað til lands koma.

Þetta eru skipin Magellan, Marco Polo, Azores og Voyager og er ætlunin að þau verði hér við land þegar næsti sólmyrkvi verður þann 20. mars. Sólmyrkvinn er almyrkvi og ferill hans liggur aðeins um 70-100 km austan við Ísland samkvæmt stjörnufræðingum. Öll skemmtiferðaskipin eru mjög glæsileg en Magellan er þeirra stærst, alls 46 þúsund tonn að stærð og tekur alls 1250 farþega. Uppselt er í siglingarnar með skipunum fjórum samkvæmt upplýsingum frá útgerðum þeirra.

„Við finnum það hjá erlendum skipaútgerðum að áhugi ferðamanna á siglingum hingað eykst ár frá ári og þar horfa menn á að Ísland sé í lykilhlutverki á Norðurslóðum. Sólmyrkvinn í mars er spennandi og norðurljósin hafa gríðarlegt aðdráttarafl. Þetta býður augljóslega upp á ný og mikilvæg tækifæri fyrir okkur Íslendinga. Það eru klárlega mjög spennandi tímar framundan í þessum geira. Skemmtiferðaskipin eru mjög mikilvægur þáttur í ört stækkandi ferðaþjónustugeiranum sem var stærsta útflutningsafurð Íslendinga undanfarin tvö ár," segir Jóhann ennfremur.