Alls voru 58 skjölum, bæði kaupsamningum og afsölum, um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst í júní. Þetta kemur fram á vef Fasteignaskrár . Utan höfuðborgarsvæðisins var 43 skjölum þinglýst.

Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 3.400 milljónir króna en 879 milljónir króna utan þess. Af þessum samningum voru 24 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu.

Verðmæti samninganna er umtalsvert minna en það var í júní í fyrra, þegar það var 5,9 milljarðar. Aftur á móti var það 2,4 milljarðar í júní 2011.