Fjármálaeftirlitið hefur í dag samþykkt umsókn FL Group til að fara með virkan eignarhlut í Tryggingamiðstöðinni (TM). FL Group hefur þar með heimild FME til að fara með meira en 50% eignarhluta í TM. FL Group á 99,1% hlutafjár í TM sem hefur tilheyrt samstæðureikningi FL Group frá og með fjórða ársfjórðungi 2007.