FL Group hefur lækkað um 12,61% í Kauphöll Íslands í dag og er gengi félagsins nú 7,28. Fyrir stundu hafði félagið lækkað um rúmlega 13% og var gengi þess komið í 7,24.

Velta í félaginu í dag hefur verið um 171 milljón en alls eru skráðar 65 færslur með hlutabréf í fyrirtækinu.