FL Group hefur gengið frá samningum um sölu á Ferðaskrifstofu Íslands, sem er eigandi Úrvals Útsýnar og Plúsferða, og er kaupandi félagsins Exit ehf., eigandi Sumarferða. Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Söluhagnaður er áætlaður um 1 milljarður króna en endanlegt söluverð mun ráðast af endurskoðuðu uppgjöri ársins 2005. Söluhagnaðurinn mun bókfærast á fyrsta ársfjórðungi.

Félagið hefur hefur verið hluti af samstæðu FL Group en hverfur úr samstæðu félagsins við söluna. Velta Ferðaskrifstofu Íslands á árinu 2005 nam um 2,4 milljörðum króna.