Tap FL Group [ FL ] á árinu 2007 nam 67,3 milljörðum króna og var 63,2 milljarðar króna á fjórða ársfjórðungi. Allar skráðar eignir félagsins eru færðar á markaðsvirði segir í tilkynningu félagsins.

Heildareignir jukust um 60,7% á árinu og námu 422,3 milljörðum króna. Tryggingamiðstöðin kemur inn í samstæðureikning félagsins frá og með 1. október og er því hluti af efnahagsreikningi félagsins í lok árs.

Eigið fé var 155,8 milljarðar króna í lok árs, sem er aukning um 13,2 milljarða króna frá árslokum 2006. Aukningin skýrist m.a. af hlutafjáraukningu í tengslum við kaup félagsins á Tryggingamiðstöðinni og fasteignafélögum af Baugi Group á síðari hluta ársins.

Eiginfjárhlutfall í lok árs var 36,9% og lausafjárstaða í formi handbærs fjár og ógreiddra hlutafjárloforða sem kom til greiðslu 4. janúar, var 28,6 milljarðar króna, sem endurspeglar fjárhagslegan styrk félagsins.

Við birtingu ársreiknings hefur FL Group endurfjármagnað andvirði 47,1 milljarða króna af lánum með gjalddaga árið 2008 en eftir standa um 8,5 milljarðar. Í ljósi markaðsaðstæðna á fjórða ársfjórðungi voru óskráðar eignir félagsins færðar niður sem nemur 3,7 milljarða segir í tilkynningu.

Hár rekstrarkostnaður á fjórðungnum skýrist m.a. af kostnaði vegna fjárfestingaverkefna, einskiptiskostnaði vegna stjórnendabreytinga og bókfærðum kostnaði vegna kaupréttarsamninga starfsmanna.