Væntingavísitala Gallup fyrir ágúst lækkaði þriðja mánuðinn í röð. Væntingavísitalan var birt í morgun og lækkaði um 12 stig frá fyrri mánuði og mælist gildi hennar nú 50,1 stig. Er þetta lægsta gildi sem vísitalan hefur mælst á árinu og þess að auki er gildið nú í ágúst tæpum 20 stigum lægra en það var í ágúst í fyrra þegar hún náði sínu hæsta gildi frá hruni, þ.e. 69,9 stigum.

Greining Íslandsbanka segir að ljóst sé að íslenskir neytendur eigi langt í land með að vera bjartsýnir á horfur í efnahags- og atvinnumálum en sem kunnugt er mælir vísitalan væntingar neytenda til efnahags- og atvinnulífisins, og þegar vísitalan er undir 100 stigum eru fleiri svartsýnir en bjartsýnir.

Allar undirvísitölur Væntingavísitölunnar lækkuðu á milli júlí og ágúst síðastliðins sem bendir til þess að væntingar neytenda til núverandi ástands í efnahags- og atvinnumálum jafnt og ástandsins eftir sex mánuði séu minni nú en fyrir mánuði síðan. Væntingar til aðstæðna eftir 6 mánuði lækkuðu um tæp 19 stig og mælist sú vísitala nú 68,2 stig sem er lægsta gildi hennar frá því í október fyrir ári.

"Þessi þróun væntingavísitölunnar kemur okkur ekki á óvart enda hefur mikið umrót verið á erlendum mörkuðum undanfarið og hefur talsverð umræða verið um það í fjölmiðlum. Eignaverð hefur lækkað, hagvöxtur hægt á sér og hagvaxtaspár verið lækkaðar fyrir öll helstu viðskiptalönd Íslands. Þá bætist við að verðbólgan hefur verið að færast í aukanna hér á landi með tilheyrandi áhrifum á kaupmátt og verðtryggðar skuldir. Svarsýni neytenda er hins vegar umhugsunarefni í ljósi þess að staðan á vinnumarkaði hefur batnað nokkuð frá því fyrr á árinu og hagvaxtaspár fyrir Ísland hafa verið hækkaðar fyrir þetta ár," segir í frétt greiningar Íslandsbanka.