Icelandair hefur ákveðið að fljúga að minnsta kosti eitt flug til þeirra þriggja borga í Rússlandi þar sem leikir Íslands í riðlakeppninni á Heimsmeistaramótinu í knattspyrnu fara fram. Ljóst verður 1. desember um hvaða borgir verður að ræða og hverjir leikdagar Íslands verða, en þá verður dregið í riðla keppninnar. Flogið verður frá Íslandi daginn fyrir leik og til baka daginn eftir leik.

„Við fáum mikið af fyrirspurnum um HM og ljóst að fjöldi Íslendinga mun gera sér ferð á keppnina“, segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair. „Eflaust munu margir nýta sér áætlunarflug til borga í Evrópu og taka þaðan flug eða lest á áfangastað, en nú liggur fyrir að Icelandair mun fljúga beint á alla þrjá leiki Íslands í riðlakeppninni.“

Fljótlega að loknum HM-drættinum 1. desember, þegar leikstaðir og leiktímar liggja fyrir, verður flugið auglýst og sett í sölu. Áhugasamir geta skráð sig á HM síðu Icelandair . Einn heppinn þátttakandi verður dreginn út og fær ferð fyrir tvo til Rússlands með gistingu.