Icelandair hefur sent frá sér tilkynningu sem segir að sökum veðurs hefur félagið ákveðið að seinka flugi frá Evrópu til Íslands eftir hádegið í dag. Raskanir hafa einnig orðið á innanlandsflugi í dag.

Raskanirnar hafa þau áhrif að seinkun verður á síðdegisflugi frá Íslandi og í einhverjum tilfellum þarf að aflýsa flugi vegna afgreiðslutíma á flugvöllum erlendis. Icelandair hefur þegar haft samband við þá farþega sem verða fyrir áhrifum af seinkununum.

„Icelandair leggur áherslu á að upplýsa farþega með bestu upplýsingum sem liggja fyrir hverju sinni og mun senda tölvupóst og smáskilaboð til farþega ef breytingar verða á flugáætlun þeirra. Ef til aflýsingar kemur munu farþegar fá nýja ferðaáætlun senda með tölvupósti. Farþegum er bent á að fylgjast með tölvupósti og smáskilaboðum frá flugfélaginu. Ekki er nauðsynlegt að hafa samband við Icelandair nema ný ferðaáætlun henti ekki.“