Flug­vél­in sem leitað hefur verið undanfarnar klukkustundir í nágrenni Akureyrar er fundin.

Sam­kvæmt frétta­til­kynn­ingu frá Slysa­varn­ar­fé­lag­inu Lands­björgu fannst flug­vél­in á Trölla­skaga og er verið að flytja þá tvo sem voru í vélinni á sjúkra­hús. Ekki er greint frá ástandi þeirra.

Vélin átti að lenda í Keflavík klukk­an 16:20 en ekkert bólaði á henni.

Í kjöl­farið hófst víðtæk leit að henni og tóku báðar þyrl­ur Land­helg­is­gæsl­unn­ar þátt í leit­inni auk björgunarsveita á Suður-, Vestur- og Norðurlandi.