Verkfallsaðgerðir flugvirkja hafa áhrif á rúmlega 20 þúsund ferðamenn og valda ekki aðeins Icelandair kostnaði og tekjutapi því aðgerðirnar koma einnig illa við ferðaþjónustuna í landinu.

Þetta segir í tilkynningu frá Icelandair sem send var út fyrir skömmu en vegna boðaðra verkfallsaðgerða Flugvirkjafélags Íslands milli kl. 06 og 10 í fyrramálið mun verða umtalsverð röskun á áætlunarflugi Icelandair á morgun. Þá eru viðskiptavinir Icelandair jafnframt hvattir til þess að fylgjast vel með komu- og brottfarartímum.

„Samsvarandi verkfallsaðgerðir í morgun hafa valdið verulegum seinkunum á öllu flugi félagsins í dag og fram á kvöld,“ segir í tilkynningu félagsins.

Í tilkynningunni kemur fram að Icelandair hefur boðið Flugvirkjafélaginu sambærilegar launahækkanir og aðrir í þjóðfélaginu hafa samið um að undanförnu, þar á meðal aðrir starfshópar Icelandair.

„Það eru því Icelandair mikil vonbrigði að Flugvirkjafélagið skuli hefja svo harðar aðgerðir á viðkvæmum tíma í ferðaþjónustunni þegar eldgosi er nýlega lokið,“ segir í tilkynningunni.