Gengi hlutabréfa sænska lágfargjaldaflugfélagsins FlyMe hefur hækkað um meira en 100% frá áramótum, að sögn greiningardeildar Landsbankans, eða að meðaltali um 10% á hverjum virkum viðskiptadegi.

Fons, sem er í eigu Pálma Haraldssonar, er stærsti hluthafinn í félaginu með 20% eignarhlut.