Eins og kunnugt er var Icesave vefsíða Landsbankans í Bretlandi óvirk þann 6. október síðastliðinn.

Á vef Fjármálaeftirlitsins (FME) kemur fram að það er álit FME að Landsbankinn hafi sama dag ekki verið fær um að inna af hendi greiðslu á andvirði innstæða tiltekinna reikninga, þeirra viðskiptavina sem þess kröfðust.

Þá telur FME að samkvæmt lögum um innstæðutryggingar og tryggingakerfi fyrir fjárfesta hafi stofnast til greiðsluskyldu Tryggingasjóðs innstæðueigenda og fjárfesta gagnvart viðskiptavinum Landsbankans sem ekki hafa fengið greiddar innstæður sínar, í samræmi við ákvæði laganna