Hrönn Greipsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri SPRON Factoring. Hrönn starfaði áður sem framkvæmdastjóri Hótel Sögu og gegndi því starfi frá 1998 til 2007. Í tilkynningu kemur fram að áður starfaði Hrönn hjá Ferðaskrifstofu Úrval Útsýn frá árinu 1987 til 1995, meðal annars sem fostöðumaður innanlandsdeildar.

Hrönn útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands árið 1992 og lauk MBA í fjármálafræðum frá CASS 1997. Hrönn er gift Sigurði Skagfjörð Sigurðssyni og eiga þau þrjár dætur.