Dr. juris Páll Sveinn Hreinsson, prófessor og deildarforseti lagadeildar Háskóla Íslands, hefur samkvæmt tillögu Björns Bjarnasonar dóms- og kirkjumálaráðherra, verið skipaður dómari við Hæstarétt Íslands, samkvæmt tilkynningu frá Dómsmálaráðuneytinu. Embættið er veitt frá og með 1. september.

Þrír aðrir sóttu um embættið en það voru Viðar Már Matthíasson, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands, Þorgeir Örlygsson, dómari við EFTA-dómstólinn í Lúxemborg og Sigríður Ingvarsdóttir, héraðsdómari við héraðsdóm Reykjavíkur. Páll tekur við af Hrafni Bragasyni sem lætur af embætti fyrir aldurs sakir um næstu mánaðamót.

Páll lauk kandídatsprófi í lögum frá Háskóla Íslands 1988, og framhaldsnámi í stjórnsýslurétti og stjórnsýslufræðum við Hafnarháskóla 1991 og loks doktorsgráðu í lögfræði frá Háskóla Íslands 2005.

Hann starfaði sem fulltrúi yfirborgardómarans í Reykjavík frá 1988-1991, aðstoðarmaður umboðsmanns Alþingis frá 1991-1997 og var settur umboðsmaður Alþingis í samtals tíu málum á árunum 1997-1999. Frá 1992-2001 var Páll skipaður af forsætisráðherra, dómsmálaráðherra og iðnaðarráðherra í nefndir er sömdu meðal annars frumvörp til stjórnsýslulaga, upplýsingalaga, lögræðislaga, barnalaga, frumvarp til laga um breytingu á stjórnsýslulögum (rafræn stjórnsýsla) og frumvarp til laga um Orkustofnun og Íslenskar orkurannsóknir.

Páll kenndi við Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands frá árinu 1994 í fjölmörgum námskeiðum, flest um stjórnsýslulög, upplýsingalög, um opinbera stjórnsýslu, persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga og skyld efni. Hann varð dósent í lögum við lagadeild Háskóla Íslands í september 1997 og prófessor í lögum við lagadeild Háskóla Íslands í ágúst 1999. Hann varð varadeildarforseti frá júlí 2002 til júní 2005, og svo forseti lagadeildar frá júlí 2005. Helstu fræðasvið Páls eru stjórnsýsluréttur, viðskiptabréf, persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga.