Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra, Elsa Hrafnhildur Yeoman, forseti borgarstjórnar og Birkir Hólm Guðnason. framkvæmdastjóri Icelandair opna Food and Fun klukkan fimm í dag á Hilton Reykjavik Nordica.

Samtals tekur 31 erlendur matreiðslumeistari þátt í Food and Fun í ár og koma álíka margir frá Bandaríkjunum og Evrópu.  Í viðbót þá eru hér u.þ.b. 15 aðrir erlendir matreiðslumeistarar að fylgjast með viðburðinum. Klukkan fimm í dag verða kokkarnir kynntir til sögunnar auk fulltrúa hinna 17 reykvísku veitingastaða sem bjóða upp á Food and Fun matseðla þessa daga.

Hátíðin er nú haldin í þrettánda sinn og erlendu gestakokkarnir munu dagana 26. febrúar til 2. mars elda fjögurra rétta máltíðir á helstu veitingastöðunum borgarinnar.  Laugardaginn 1. mars mun fara fram úrslitakeppni í Hörpu um titilinn Food and Fun kokkur ársins og verður þar hinin frægi breski sjónvarpskokkur Ainsley Harriott heiðursdómari. Á sama tíma verður einnig mikill matarmarkaður í Hörpu auk þess sem Búnaðarþing verður sett.