Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, hefur boðað formenn þingflokka á sinn fund í dag. Frá þessu var greint í hádegisfréttum Bylgjunnar.

Þar kemur fram að rætt verði um framhald umræðna um þingsályktunartillögu Gunnars Braga Sveinssonar um að draga til baka aðildarumsókn að Evrópusambandinu.

Þingfundir hafa ekki verið haldnir í þessari viku, enda nefndarvika. Harðar deilur voru í þinginu í síðustu viku vegna tillögunnar.