Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, átti síðdegis í gær, 20. september, fund með Ban Ki-moon, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, í höfuðstöðvum samtakanna í New York. Á fundinum kom fram eindreginn stuðningur Ban Ki-moon við alþjóðlegt samstarfsverkefni um þurrkun matvæla sem byggt yrði á reynslu Íslendinga af þurrkun sjávarafurða. Fyrr um daginn átti forseti fund um þetta verkefni með nokkrum æðstu yfirmönnum Sameinuðu þjóðanna.

Í fréttatilkynningu frá skrifstofu forseta Íslands segir að samtvinnun hreinnar orku og eflingar fæðuöryggis í veröldinni er eitt af meginviðfangsefnum Sameinuðu þjóðanna á nýrri öld. Íslendingar hafa í áratugi þurrkað þorskhausa, beinagarða og annað sjávarfang, sem áður var hent, og flutt út til Afríku þar sem þær afurðir nýtast almenningi. Að undanförnu hefur fyrirtækið Haustak á Reykjanesi einnig þurrkað kjöt, ávexti og grænmeti í tilraunaskyni og sýnir sú reynsla að þurrkunaraðferðum Íslendinga má beita á margvíslegar afurðir.

Í heimsókn Ban Ki-moon til Íslands í sumar kynnti forseti framkvæmdastjóranum hugmyndir um alþjóðlegt samvinnuátak á þessu sviði og voru fundirnir í New York framhald af þeim viðræðum. Framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna lýsti einnig miklum áhuga á auknu samstarfi á Norðurslóðum og kynnti forseti honum alþjóðlegt þing, Hringborð Norðurslóða – Arctic Circle, sem haldið verður á Íslandi 12.-14. október, en þar verða þátttakendur frá ríkjum Norðurslóða, Asíu og Evrópu.

Ban Ki-moon gerði einnig grein fyrir stöðu mála í Sýrlandi og tilraunum sínum og Sameinuðu þjóðanna til að treysta þá samninga sem unnið hefur verið að undanfarið.