Talið er víst að síðar í dag verði greint frá forstjóraskiptum í Iceland Express. Almar Örn Hilmarsson hefur verið forstjóri félagsins en eins og kunnugt er mun hann taka að sér starf forstjóra lággjaldaflugfélagsins Sterling. Talið var að hann myndi jafnframt gegna starfi forstjóra Iceland Express en það virðist hafa breyst.

Mikil leynd hvílir yfir því hver hinn nýi forstjóri verður og hafa eigendur félagsins, Pálmi Haraldsson og Jóhannes Kristinsson haldið spilunum þétt upp að sér.