Í fréttatilkynningu frá Opnum kerfum kemur fram Elín Þórðardóttir hefur verið ráðin forstjóri Opinna Kerfa Group hf. frá og með 1. nóvember.  Jafnframt mun Elín gegna starfi stjórnarformanns í dótturfélögum Opinna Kerfa Group, Kerfi AB í Svíþjóð og Kerfi AS í Danmörku.

Elín hefur undanfarin misseri komið að ýmsum verkefnum hjá Dagsbrún og Eimskipum auk ráðgjafar fyrir ma CCP.  Áður starfaði Elín m.a hjá Ísl. Erfðagreiningu.

Elín situr í stjórn ýmissa fyrirtækja svo sem  Landic property og Nikita.

Elín er rekstrahagfræðingur að mennt frá háskólanum í Álaborg í Danmörku og lauk Cand Merc frá sama skóla.

Elín er gift Alberti Jónssyni og eiga þau tvö börn. Elín tekur við starfinu af Gylfa Árnasyni.