© Aðsend mynd (AÐSEND)

Petrea Ingileif Guðmundsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Tals. Hún tekur við starfinu af Viktori Ólasyni, sem sagði upp störfum í júní. Viktor verður nýjum framkvæmdastjóra og félaginu innan handar á næstu vikum.

Fram kemur í tilkynningu að Petrea er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands.  Áður vann hún m.a. sem framkvæmdastjóri  hjá Símanum og Skjánum ásamt ýmsum sérfræðings- og stjórnunarstörfum hjá Símanum. Undanfarin ár hefur hún sinnt ýmsum ráðgjafastörfum ásamt því að sitja í stjórn Fastengis. Petrea er gift Benedikt K. Magnússyni meðeiganda hjá KPMG og eiga þau þrjár dætur.