Stjórn Boing hefur rekið Harry Stonecipher forstjóra fyrirtækisins eftir rannsókn á sambandi hans og samverkakonu hans. Í yfirlýsingu segir að sambandið hafi gengið gegn siðareglum fyrirtækisins.

James Bell framkvæmdastjóri fjármála mun taka tímabundið við forstjórastarfinu. Harry Stonecipher er 68 ára gamall og hefur verið forstjóri flugvélaverksmiðjunnar frá því í desember 2003. Hann er kvæntur tveggja barna faðir.