Jakob Sigurðsson forstjóri SÍF verður gestur Viðskiptaþáttar Viðskiptablaðsins á Útvarpi Sögu í dag. Miklar breytingar hafa átt sér stað á rekstri SÍF undanfarið með sölu á starfsemi félagsins í Bandaríkjunum.

Í fyrri hluta þáttarins verður hins vegar rædd salan á Símanum miðað við þær upplýsingar sem liggja fyrir. Í þáttinn koma þau Edda Rós Karlsdóttir forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans og Atli Guðmundsson sérfræðingur hjá greiningu Íslandsbanka.