Vélasvið Heklu afhenti Fossvélum á Selfossi risajarðýtu af gerðinni Caterpillar D11R á starfssvæði Fossvéla við Ingólfsfjall fyrir helgi. Þetta er önnur jarðýtan af þessari gerð sem selst hér á landi á þessu ári. Að jafnaði selur Caterpillar aðeins þrjár til fjórar svona vélar á ári í Evrópu, þannig að sala á tveimur vélum til Íslands á einu og sama árinu þykir tíðindum sæta.

Í tilkynningu vegna afhendingarinnar er haft eftir Magnúsi Ólasyni framkvæmdastjóra Fossvéla: „Ýtan nýja boðar gjörbyltingu í allri okkar starfsemi og hentar afskaplega vel. Fyrirtækið er fyrst og fremst í efnisvinnslu og hefur meðal annars rekið svonefnda Þórustaðanámu í Ingólfsfjall í rúm 30 ár. Þar verður Skessan notuð við að ryðja efni ofan af fjallsbrúnni og niður hamrastálið, sem er vel á þriðja hundrað metra.”

Skessan er samtals 117 tonn að þyngd og með 935 hestafla vél. Hún er rúmlega fimm metrar á hæð með veltibogum og 2,6 metrar eru frá jörðu upp í efri brún á beltagangi. Tönnin framan á þessu tröllvaxna tæki er 19 tonn, sex metra breið og þriggja metra há og getur rutt á undan sér rúmlega 34 rúmmetrum af jarðvegi.

„Þetta er stærsta jarðýtan sem Caterpillar framleiðir og nákvæmlega eins og vélin sem er nú að störfum í Vatnsskarðsnámum við Krýsuvík,“ segir Ásmundur Jónsson, framkvæmdastjóri Vélasviðs Heklu. „Það er jafnframt einsdæmi að tvær svona vélar séu seldar sama árið til lítils lands eins og Íslands, enda voru forsvarsmenn Caterpillar vægast sagt undrandi þegar seinni pöntunin barst frá okkur.“

Undanfarna daga hafa starfsmenn Vélasviðs Heklu unnið við að standsetja Skessuna sem er nú tilbúin til notkunar. „Það er mjög spennandi að fá þetta nýja tæki því það afkastar á við mörg og því getum við jafnframt hagrætt eitthvað í rekstrinum,“ segir Magnús Ólason hjá Fossvélum.

Þar með er þó ekki öll sagan sögð því Fossvélar fengu einnig afhenta aðra jarðýtu í vikunni frá Vélasviði Heklu. Hún er af gerðinni Caterpillar D7R, sýnu minni en Skessan og vegur aðeins 31 tonn og er með 258 hestafla vél. Fyrr á árinu fengu Fossvélar afhenta CAT 980H hjólaskóflu og CAT 330CL beltagröfu.

Fossvélar ehf., sem er í eigu Kára Jónssonar og fjölskyldu, var stofnað árið 1971 og eru starfsmenn 15 talsins. Fyrirtækið er fyrst og fremst í námurekstri og efnisvinnslu og nýtir til þess sjö grjótmulningsvélar/hörpur og 20 vinnuvélar – og þar af erum 15 þeirra frá Caterpillar, segir tilkynningunni.