Inga Birna Ragnarsdóttir, framkvæmdastjóri Wow air, hefur hætt störfum hjá flugfélaginu. Haft er eftir Ingu Birnu í Markaðnum í dag að aðdragandinn hafi ekki verið langur. Hún segir flugfélagið hafa vaxið ört og hyggi á frekari vöxt. Á slíkum tímamótum kunni sú staða að koma upp að menn hafi ólíkar áherslur. Ekki sé óeðlilegt að áherslur breytist þannig að fólk sé ekki 100% sammála. Þau Skúli Mogensen, forstjóri og stofnandi Wow air, hafi því orðið sammála um starfslok.

„Við urðum sammála um að vera ósammála áfram og því ætla ég á vit nýrra ævintýra,“ segir Inga Birna í samtali við Markaðinn.

Inga Birna var ráðin framkvæmdastjóri Wow air í ágúst árið 2012.